Beint í efni
Leita

Vítamín og steinefni með hækkandi aldri

Vítamín og steinefni eru nauðsynleg til að viðhalda eðlilegri líkamsstarfsemi og almennri heilsu. Besta leiðin til að fá þessi næringarefni er að borða holla og góða fæðu en það dugir þó ekki alltaf til þegar aldurinn færist yfir.

Orkuþörf okkar minnkar með hækkandi aldri, einkum vegna hægari efnaskipta og minni hreyfingar. Þörfin fyrir lífsnauðsynleg vítamín og steinefni helst hins vegar óbreytt eða jafnvel eykst. Það er því mikilvægt að huga vel að næringargildi fæðunnar og markvissri inntöku vítamína og steinefna samhliða hollu og góðu mataræði.

Margrét Soffía Runólfsdóttir
Lyfjafræðingur

D-vítamín og kalk

Bæði D-vítamín og kalk eru nauðsynleg til að viðhalda góðri beinheilsu og koma í veg fyrir beinþynningu. D-vítamín er nauðsynlegt svo líkaminn geti nýtt kalk úr fæðunni og tryggt að það skili sér inn í beinvefinn.

Þar sem sólarljós á Íslandi er ófullnægjandi til D-vítamínmyndunar meirihluta ársins, er mælt með daglegri inntöku þess í formi lýsis eða taflna.

Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: 20 µg (800 AE) af D-vítamíni og 950 mg af kalki.

Mælum með

  • 20%
    Huemeno Vitamin D3&K2 60stk

    Huemeno Vitamin D3&K2 60stk

    Fyrra verð: 2.998 kr.Núverandi verð: 2.398 kr.
  • 20%
    Nordaid K2 +D3 Munnúði 40 dagsskammtar

    Nordaid K2 +D3 Munnúði 40 dagsskammtar

    Fyrra verð: 2.698 kr.Núverandi verð: 2.158 kr.
  • 20%
    BetterYou D-Lux +K2 Vítamín Munnúði 12ml

    BetterYou D-Lux +K2 Vítamín Munnúði 12ml

    Fyrra verð: 2.198 kr.Núverandi verð: 1.758 kr.
  • 20%
    NOW D3+K2 1000 120stk

    NOW D3+K2 1000 120stk

    Fyrra verð: 2.298 kr.Núverandi verð: 1.838 kr.

B12-vítamín

B12-vítamín er lífsnauðsynlegt fyrir taugakerfið og blóðmyndun og því getur skortur valdið blóðleysi. Með aldrinum dregur oft úr upptöku vítamínsins vegna minni magasýruframleiðslu eða inntöku ýmissa lyfja sem geta truflað upptöku vítamínsins frá meltingarvegi. B12-vítamín í formi munndreifitaflna og munnsprey geta því reynst áhrifarík, þar sem vítamínið frásogast beint í gegnum slímhúð munnsins.

Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: 4,0 mcg

Við mælum með

  • 20%
    NOW B12 1000mcg 100stk

    NOW B12 1000mcg Tyggitöflur 100stk

    Fyrra verð: 1.898 kr.Núverandi verð: 1.518 kr.
  • 20%
    NOW B12 Vitamin Munnúði 59ml

    NOW B12 Vitamin Munnúði 59ml

    Fyrra verð: 2.898 kr.Núverandi verð: 2.318 kr.
  • 20%
    Nordaid B12 Spray 30ml

    Nordaid B12 Spray 30ml

    Fyrra verð: 2.798 kr.Núverandi verð: 2.238 kr.
  • 20%
    Ein á dag Sterkt B12 með B6 og Fólín 120stk

    Ein á dag Sterkt B12 með B6 og Fólín 120stk

    Fyrra verð: 2.999 kr.Núverandi verð: 2.399 kr.

Járn

Fyrir fólk 67 ára og eldra geta járnbirgðir skipt verulegu máli fyrir orku, úthald og starfsemi hjarta- og æðakerfis. Aldurstengdar breytingar á meltingarvegi geta torveldað upptöku járns, sem þýðir að jafnvel járnríkt mataræði dugar ekki alltaf til að viðhalda heilbrigðum járnbúskap. Skortur getur valdið mikilli þreytu og slappleika.

Járn sjálfspróf fæst í Apótekaranum og getur verið auðveld og gagnleg leið til að athuga járnforða líkamans.

Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: Karlar 9mg / Konur 7mg

Við mælum með

  • 24%
    NOW Iron Complex 100stk

    NOW Iron Complex 100stk

    Fyrra verð: 2.098 kr.Núverandi verð: 1.598 kr.
  • SURESIGN Hraðpróf á Járnskorti í blóði

    SURESIGN Hraðpróf á Járnskorti í blóði

    2.598 kr.
  • 20%
    BetterYou Járn Munnúði 10ml

    BetterYou Járn Munnúði 10mg 25ml

    Fyrra verð: 3.298 kr.Núverandi verð: 2.638 kr.
  • 20%
    Nordaid Liposomal Járn Munnúðir 100skammtar

    Nordaid Liposomal Járn Munnúði 100skammtar

    Fyrra verð: 3.198 kr.Núverandi verð: 2.558 kr.

Magnesíum

Magnesíum er steinefni sem er líkamanum lífsnauðsynlegt, sérstaklega fyrir eðlilega starfsemi taugakerfis og vöðva. Ef líkamann skortir þetta steinefni getur það lýst sér í vöðvakrömpum, fótapirringi, síþreytu og erfiðleikum með svefn. Þar sem upptaka þess minnkar gjarnan þegar fólk eldist getur verið þörf á að taka magnesíum inn sem bætiefni. Úrvalið er fjölbreytt og hentar mismunandi þörfum, en Magnesium Glycinate og Magnesium Citrate eru þau form sem nýtast líkamanum einna best. Magnesium bætiefni er til í mismunandi formum, til dæmis sem töflur, duft, munn-eða líkamssprey eða sem baðflögur.

Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: Karlar 350mg / Konur 300mg

Við mælum með

  • 20%
    NOW Magnesíum Citrate 90stk

    NOW Magnesíum Citrate 90stk

    Fyrra verð: 3.198 kr.Núverandi verð: 2.558 kr.
  • 20%
    Trace Magnesium Citrate Gúmmí Watermelon 120st

    Trace Magnesium Citrate Gúmmí Watermelon 120st

    Fyrra verð: 4.298 kr.Núverandi verð: 3.438 kr.
  • 20%
    NOW Magnesium Glycinate Tablets

    NOW Magnesium Glycinate 180 töflur

    Fyrra verð: 4.598 kr.Núverandi verð: 3.678 kr.
  • 20%
    Protis Magnesium Glycinate 90 hylki

    Protis Magnesium Glycinate 90 hylki

    Fyrra verð: 4.599 kr.Núverandi verð: 3.679 kr.

Augnheilsa

Með hækkandi aldri er algengt að sjónin breytist og hætta á augnsjúkdómum eykst. Augnvítamín eins og A-, C-, og E-vítamín, lútín og zeaxantín geta verið mikilvæg þegar við eldumst þar sem þau virka sem öflug andoxunarefni. Þau vernda frumur sjónhimnunnar og hægja á hrörnun eins og aldurstengdri augnbotnahrörnun.

Sérhæfð augnvítamín sem fást í apótekum eru hönnuð til að styðja við sjón, vernda augnbotna og viðhalda almennri augnheilsu.

Við mælum með

  • 20%
    Keynatura AstaEye 60stk

    Saga Natura AstaEye 60stk

    Fyrra verð: 4.798 kr.Núverandi verð: 3.838 kr.
  • 20%
    Viteyes AREDS2 60hylki

    Viteyes AREDS2 60hylki

    Fyrra verð: 5.798 kr.Núverandi verð: 4.638 kr.
  • 20%
    Membrasin Vision Bætiefni 90stk

    Membrasin Vision Bætiefni 90 hylki

    Fyrra verð: 5.798 kr.Núverandi verð: 4.638 kr.
  • 20%
    Ultra Macular Augnvítamín

    Ultra Macular Augnvítamín 120 hylki

    Fyrra verð: 11.498 kr.Núverandi verð: 9.198 kr.

Kíktu til okkar í næsta Apótekara, við tökum vel á móti þér og hjálpum þér að finna þau vítamín og bætiefni sem henta þér og þinni heilsu.