Það byrjar kannski með smá hrolli og þreytu en áður en þú veist af ertu komin/n undir sæng með hita og beinverki. Flensan er mætt. Inflúensa, eða flensa, er veirusýking sem kemur oft skyndilega. Hiti, kuldahrollur, höfuðverkur, bein- og vöðvaverkir, mikil þreyta og hósti eru dæmigerð einkenni. Hálssærindi og nefstífla geta einnig fylgt með. Það er engin töfralausn sem lætur flensuna hverfa á einni nóttu en sem betur fer er ýmislegt hægt að gera til að lina einkennin og gera veikindadagana bærilegri.