









ESTÉE LAUDER ANR Recovery Treatment Essence 100ml
Létt andlitsvatn sem gefur húðinni djúpan raka, róar hana og styrkir.
Advanced Night Repair Recovery Treatment Essence er létt andlitsvatn sem gefur húðinni djúpan raka, róar hana og styrkir. Vatnið er innblásið af nýjustu exósóm meðferðum húðlækninga og sameinar yfir 500 peptíð við Bio-Exosome Technology til að styðja við náttúrulega endurnýjun og styrkingu húðar. Ofurlétt, vatnskennd formúlan smýgur hratt inn í húðina, kælir hana við ásetningu og styrkir húðvarnarhjúpinn. Strax eftir fyrstu notkun verður húðin sterkari, rakameiri og mýkri viðkomu.
Water Aqua Eau, Peg-8, Propanediol, Bifida Ferment Filtrate, Lactobacillus Ferment, Tripeptide-32, Centella Asiatica Leaf Extract, Acetyl Hexapeptide-8, Adansonia Digitata Seed Extract, Sodium Hyaluronate, Ferulic Acid, Camellia Sinensis (green Tea) Leaf Extract, Tocopherol, Dipotassium Glycyrrhizate, Trametes Versicolor Extract, Yeast Extract Faex Extrait De Levure, Glycerin, Caffeine, Anthemis Nobilis (chamomile) Flower Extract, Hydrolyzed Rice Extract, Glycine Soja (soybean) Oil, Acetyl Glucosamine, Butylene Glycol, Betaine, Trehalose, Caprylyl Glycol, Maltodextrin, Polysorbate 80, Pentylene Glycol, Tromethamine, Citric Acid, Carbomer, Sodium Citrate, Disodium Edta, Phenoxyethanol, Potassium Sorbate <ILN55104>
Berið Advanced Night Repair Recovery Treatment Essence/Treatment Lotion á hreina húð kvölds og morgna áður en serum er borið á. Hellið 3–5 dropum í lófann og dreifið vörunni á milli handanna. Þrýstið síðan vörunni varlega inn í húðina með lófunum. Byrjið á miðju andlitinu og færið ykkur út á við. Þrýstið vörunni varlega á ennið, meðfram hliðum andlitsins, kjálkalínunni og restinni af andlitinu. Að lokum skuluð þið nudda húðina létt með hröðum hreyfingum með hnúunum til að örva húðina og stuðla að betri upptöku virku innihaldsefnanna. Notið vöruna kvölds og morgna til að ná sem bestum árangri. Notkun í húðrútínu: 1. Hreinsið húðina. 2. Berið á Recovery Treatment Essence/Treatment Lotion. 3. Berið á augnkrem 4. Berið á serum 5. Ljúkið rútínunni með rakakremi