
Guli Miðinn Barna D vít munnúði 30ml
D3-vítamín munnúði fyrir börn með náttúrulegu appelsínubragði. Hver úði veitir 400 AE (10 μg) af D3-vítamíni.
Barna D-vítamín er munnúði sem gerir daglega D-vítamíninntöku einfalda og þægilega. Hver úði inniheldur 400 AE (10 μg) af D3-vítamíni og flaskan inniheldur allt að 215 skammta.
D-vítamín er mikilvægt fyrir eðlilegan vöxt og þroska beina hjá börnum og stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Helstu eiginleikar
400 AE (10 μg) D3-vítamín
Fyrir börn
Náttúrulegt appelsínubragð
215 skammtar
Auðvelt að gefa
Kókosolía, Virk efni (kólekalsíferól (D3-vítamín)), Sætuefni (súkrarlósi), Bragðefni (náttúrulegt appelsínu bragðefni).
Virkjið pumpuna með því að þrýsta nokkrum sinnum áður en varan er notuð í fyrsta skipti. Hristið vel fyrir hverja notkun. Setjið lokið á eftir notkun. Skolið stútinn ef hann stíflast. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til. Ábyrgðaraðili: Heilsa











