






PRADA Paradoxe Intense Eau de Parfum Refill
Áfylling á Prada Paradoxe Intense Eau de Parfum. Ný og kvenleg dýpt frá Prada. Þessi kvenlegi ilmur endurspeglar styrkleika í gegnum mýkt. Útkoman er djúpur og magnaður ilmur konu sem er á sama tíma kröftug og full af hlýju Blómlegur ambrailmur með viðarkenndum blæ dregur fram mótsagnakenndan styrk fíngerðra ilmefna.
Áfylling á Prada Paradoxe Intense Eau de Parfum. Ný og kvenleg dýpt frá Prada. Þessi kvenlegi ilmur endurspeglar styrkleika í gegnum mýkt. Útkoman er djúpur og magnaður ilmur konu sem er á sama tíma kröftug og full af hlýju
Ilmurinn kannar styrk í gegnum fínleika og mýkt. Útkoman er ákafur einkennisilmur konu sem er sífellt að endurskapa sjálfa sig, ögrar viðteknum venjum og kannar kvenleika sem er bæði kraftmikill og fínlegur.
ILMURINN: MÓTSAGNAKENNDUR STYRKUR FÍNGERÐRA ILMEFNA
Blómlegur ambrailmur með viðarkenndum blæ dregur fram mótsagnakenndan styrk fíngerðra ilmefna: kröftuga útgeislun fínlegs jasmínblóms og lifandi, umvefjandi hlýju ambra-samhljóms, sem er dýpkuð með fíngerðum en auðþekkjanlegum mosasamhljómi. Ákafur ilmur sem gefur kvenleikanum dularfulla og heillandi nærveru. Blómakeimurinn er magnaður með einstaklega ríkulegu jasmíninnrennsli sem skapar sérstaka útgeislun. Skynjunin dýpkar með Ambrofix™, sem er framleitt með líftækni og gefur ilminum enn meiri lífskraft. Viðarkeimur og mosi.
• Toppnóta: Jasmínblóm
• Hjartanóta: Ambra-samhljómur
• Grunnnóta: Mosasamhljómur
FLASKAN: FÍNGERÐ EN ÓHEFÐBUNDIN
Eins og upprunalegi einkennisflakóninn endurspeglar endurhönnuð flaska Paradoxe Intense kjarna Prada – stöðuga endurnýjun og dálæti á andstæðum. Í stað hefðbundinnar hönnunar ilmvatnsflösku er flaskan við fyrstu sýn látlaus og fínleg, innblásin af hinu táknræna þríhyrningsmerki Prada og óhefðbundið hönnuð til að hvíla á hliðinni. Skjaldarmerki Prada sker sig úr gegn djúpbleikum lit ilmsins. Á skábrúninni efst stendur „Paradoxe Intense“.
KONAN: ALDREI EINS, ALLTAF HÚN SJÁLF
Óvænt samspil fínleika og styrks er kjarninn í Prada-hönnun sem sífellt ögrar væntingum og viðteknum viðmiðum. Prada Paradoxe Intense kannar einkenni sem jafnan eru tengd kvenleika: mýkt og viðkvæmni, og túlkar þau á ný fyrir konu sem er aldrei eins, en alltaf hún sjálf. Ilmurinn er birtingarmynd kvenleika sem lætur ekki skilgreina sig, ögrar væntingum og gefur þeim óvæntan styrk.
UMBÚÐIRNAR: SKÖPUNARGLEÐI OG ÁBYRGÐ Í SAMHLJÓMI
Nýju umbúðirnar eru endurvinnanlegar, bæði kassar og flöskur. Glerflöskurnar hafa verið hannaðar til að draga úr þyngd og glermagni og kassarnir eru FSC™ MIX-vottaðir. Öll Paradoxe-línan er áfyllanleg og dregur þannig úr umbúðaefni. Með einni 50 ml flösku af Prada Paradoxe Intense og einni 100 ml áfyllingu er notað alls 40% minna efni en með þremur 50 ml flöskum af Prada Paradoxe Intense. Þetta samsvarar 29% minna gleri, 67% minna af málmum, 46% minna plasti og 39% minna pappa.
1266080 14 - INNIHALDSEFNI: ALCOHOL • PARFUM / FRAGRANCE • AQUA / WATER / EAU • TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES • LINALOOL • VANILLIN • CITRUS AURANTIUM BERGAMIA PEEL OIL • BENZYL SALICYLATE • CARVONE • LIMONENE • LINALYL ACETATE • BENZYL ALCOHOL • HYDROXYCITRONELLAL • CITRUS AURANTIUM PEEL OIL • BUTYL METHOXYDIBENZOYLMETHANE • DIMETHYL PHENETHYL ACETATE • COUMARIN • METHYL ANTHRANILATE • PINENE • CITRONELLOL • GERANYL ACETATE • GERANIOL • BENZALDEHYDE • TERPINEOL • TRIMETHYLBENZENEPROPANOL • ROSE KETONES • JUNIPERUS VIRGINIANA OIL • CITRUS AURANTIUM FLOWER OIL • CITRAL • TRIS(TETRAMETHYLHYDROXYPIPERIDINOL) CITRATE • TERPINOLENE • BETA-CARYOPHYLLENE • BENZYL BENZOATE • ALPHA-TERPINENE • JASMINE OIL/EXTRACT • CI 14700 / RED 4 • CI 17200 / RED 33 (F.I.L. N70087927/1).
Til að fylla á Paradoxe-flöskuna: 1. Fjarlægðu lokið af áfyllingunni. 2. Skrúfaðu dæluna af Paradoxe-flöskunni. 3. Haltu flöskunni stöðugri og settu áfyllinguna ofan á. 4. Festu áfyllinguna og opnaðu hana með þumli og vísifingri. 5. Þegar flaskan er full skaltu loka áfyllingunni með því að snúa í gagnstæða átt. 6. Skrúfaðu dæluna aftur á flöskuna og settu lokið á.






















