

Biotherm
Biotherm, brautryðjandi í húðumhirðu síðan 1952, nýtir krafta náttúrulegra innihaldsefna til þess að ná einstökum árangri. Aðal innihaldsefni Biotherm er hið einstaka Life Plankton™ sem á uppruna sinn úr heitum lindum í Pýrenafjöllunum. Life Plankton™ styrkir varnarkerfi húðarinnar, örvar viðgerðarhæfni og endurnýjun hennar ásamt því að byggja hana upp. Biotherm hefur einkaleyfi á Life Plankton™ og efnið hefur verið rannsakað í samvinnu við margar virtustu stofnanir og háskóla og yfir 100 fræðigreinar hafa verið ritaðar um efnið frá 1952.
Biotherm notar einnig sérfræðiþekkingu og lífvísindi til þess að leggja áherslu á hreinar áhrifaríkar, niðurbrjótanlegar formúlur, með þægilega áferð og góðan ilm. Fjölbreytileiki vatnsuppspretta jarðar býður upp á ótal rannsóknartækifæri til þess að finna þörunga, örverur og svif sem hafa eiginleika sem hægt er að nýta í húðvörum. Biotherm heldur áfram að rannska þessi innihaldsefni og nýta virkni þeirra í vörur sínar til að gefa raka, endurnýja húðina og vinna á öldrunareinkennum.









