

Um Gamla apótekið
Gamla apótekið er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, smyrslum, áburðum og olíum. Vörur Gamla apóteksins byggja á hefðbundinni apótekarhefð og þekkingu sem þróast hefur í gegnum árin. Rekja má uppruna starfseminnar aftur til ársins 1953 þegar Apótek Austurbæjar var stofnað á Háteigsvegi. Framleiðsla fór þar fram í áratugi þar til í janúar 2010 þegar hún var flutt í stærra húsnæði í Síðumúla, þar sem öll framleiðsla fyrirtækisins fer fram í dag.







































